Það eru góðar fréttir af Vettvangi sem fyrr. Í þessu fréttabréfi segjum frá nýjum lausnum fyrir HS Orku og Nóa Síríus og kynnum nýja, öfluga starfsmenn sem hafa bæst í teymin okkar nýlega. Við tókum líka þátt í UT messunni og fengum marga skemmtilega gesti til okkar.
Stafræni leiðtoginn : Tinna Harðardóttir
Tinna Harðardóttir fer fyrir upplýsingatæknisviði Innnes og hefur leitt stór umbreytingarverkefni undanfarin ár í stafvæðingu þjónustu hjá Innnes. Hún segir okkur frá helstu vörðum á leiðinni, áskorunum, frábærum árangri og spennandi framtíðarmúsik. Tinna hefur frá mörgu að segja - ekki missa af þessu viðtali!
Það styttist í páskana og súkkulaðiveisluna miklu þar sem eggin frá Nóa verða á borðum stórs hluta landsmanna. Vettvangur hannaði og setti upp skemmtilegan páskavef í samstarfi við Nóa Síríus til að hita upp fyrir herlegheitin. Ef þessi kveikir ekki í bragðlaukunum þá vitum við ekki hvað gerir það - gleðilega páska!
Nýr vefur HS Orku er líflegur og aðgengilegur, með einföldu flæði og skipulagi. Helsti markhópur hans eru viðskiptavinir á neytenda- og fyrirtækjamarkaði. Hönnun uppfærðs vef tekur mið af nýrri mörkun og heildarásýnd sem hönnuð var af alþjóðlegu hönnunarstofunni Brandpie.
Vettvangur er í stöðugum vexti og þróun. Við erum lánsöm að hafa laðað til okkar frábært fagfólk, en því má þakka fjölbreytt og metnaðarfull verkefni sem okkur hefur verið treyst fyrir.
Nýlega bættist í hópinn öflugur full-stack forritari, Róbert Snær, en hann starfaði síðast hjá Advania.
Kristín er stórefnilegur UX/UI hönnuður og reyndar framendaforritari líka sem hefur nýlega lokið námi og mun styrkja enn frekar öflugt hönnunarteymi okkar.
Vettvangur á UT messunni
Vettvangur lét sig ekki vanta á UT messuna þetta árið og var með skemmtilegan bás sem dróg að marga gesti og gangandi, góðkunningja og viðskiptavini, en einnig ný, forvitin andlit. Við þökkum fyrir öll innlitin og hlökkum til næstu messu!