Ný ásýnd á vörumerki Vettvangs, splúnku nýtt app fyrir Innnes, nýtt blogg um þjónustuvefi og heimsókn frá Tækniskólanum. Við stiklum á stóru um það helsta sem hefur verið á döfinni hjá Vettvangi.
Við þökkum kærlega fyrir samfylgdina og lesturinn á árinu sem er að líða. Ef eitthvað í okkar umfjöllun kveikir spurningar, hugmyndir eða pælingar um verkefni þá vitið þið hvar þið finnið okkur.
Njótið áramótanna - sjáumst hress á nýju ári! 💫
Vettvangur fær nýja ásýnd
Ný nálgun á rótgrónu vörumerki. Vettvangur fékk á árinu skemmtilega skerpingu á vörumerki sínu. Merkið sjálft var einfaldað og útfært með fjölbreytta miðla í huga.
Lestu skemmtilega yfirferð um nálgun hönnuða okkar og hvernig þeir tókust á við þetta skemmtilega verkefni.
Vantar þig nýja mörkun fyrir stafræna miðla? Kannaðu máliðhér
Innnes hefur gefið út nýtt pöntunarapp í samstarfi við Vettvang og Apparatus sem gerir viðskiptavinum kleift að sinna innkaupum sínum á einfaldan, fljótlegan og notendavænan hátt.
Helstu eiginleikar appsins:
✅ Yfirlit yfir pantanir og vörur ✅ Snjöll og hraðvirk leit ✅ Vörulistar ✅ Strikamerkjaskanni ✅ Tilkynningar