Tvær tilnefningar hjá Awwwards Fyrr á árinu fengum við tilnefningu til Íslensku vefverðlaunanna fyrir nýja vefinn okkar þar sem við kynntum nýja ásýnd Vettvangs.
Í maí fékk microvefurinn brand.vettvangur.is, þar sem við köfum ofan í hönnunina sjálfa, tvær tilnefningar hjá Awwwards. : „Honorable Mention“ og tilnefningu fyrir bestu leturhönnun. Einn færasti kvikari (e.animator) landsins, Krzysztof Mike Szkudlarek , á stærstan heiðurinn af brandvefnum: „Góð leturhönnun er ósýnileg ef hún heppnast vel, hún leiðir þig í gegnum efnið án þess að þú takir eftir henni. Í þessu verkefni finnst mér við höfum náð því vel. Ég er mjög ánægður með útkomuna og þessar flottu viðurkenningar frá Awwwards.“ - Mike.
|