Stafrænar lausnir standa og falla með vandaðri hönnun þar sem notandinn og þarfir hans eru í algjörum í forgangi.
Til að anna fleiri og metnaðarfyllri verkefnum, og styrkja enn frekar fagmennsku í hönnunarferlum okkar höfum við sett á laggirnar sérstaka hönnunardeild, sem annast hönnun fyrir bæði Vettvang og Apparatus.
Geirlaugur Kristjánsson er hönnunarstjóri og leiðir teymið, en súperteymi hans skipa Kristín Helga Erlendsdóttir, Þórir Rafn Rúnarsson og Ómar Yamak (sjá nánari kynningu á Þóri og Ómari neðar).
„Miklar breytingar hafa átt sér stað á stuttum tíma með komu þriggja öflugra hönnuða. Við höfum innleitt ný ferli og mótað skýrari stefnu fyrir hönnunardeildina, með skýrari áherslum hvað varðar hönnun, notendaupplifun og skilvirkt samstarf. Allt þetta kemur til með að stuðla að meiri gæðum frá upphafi til enda.“ - Geirlaugur Kristjánsson, hönnunarstjóri.
|